Það er í dag sem hinn árlegi halloween dagur er haldinn og veit ég um að hérna ekki langt frá verða alls kyns forynjur og púkar á sveimi ásamt nornum og fleira hyski í halló-vín gleði.
Eins gott að læsa að sér í nótt.
Systurnar eru hjá mér og ætla að gista og það verður sko kósý kvöld hjá okkur kertaljós, snakk og bíó. Ætlaði að bjóða þeim að gista í húsbílnum en veðrið er ekki alveg nógu spennandi þessa stundina svo þær gista bara síðar í honum. Meira síðar, því ekki þýðir fyrir barnfóstruna síkátu að vera í tölvunni set hana því bara í töskuna góðu eins og svo margt annað.
Bloggar | 31.10.2008 | 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Kalt brrrr hann bítur enda fer að styttast í fyrsta vetrardag sem er á laugardag og þá má búast við veðri af ýmsum gerðum. Vona bara að verði ekki eins mikill snjór eins og síðasta vetur.
Ég skrapp til borgarinnar í gær en fór ekkert í búðir, að vísu kom ég við í einni verslunarmiðstöð en þegar ég sá fjöldann þar inni sneri ég við, var einhver að tala um kreppu?
Óperan sýndi Cavalleria Rusticana og Pagliacci í gærkvöldi og held ég að þetta hafi verið síðasta sýningin á þessum verkum. Ýmislegt mátti nú betur fara verð ég að segja, en mér fannst Eyjólfur Eyjólfs. sem skilaði sínu mjög vel sem Peppe og eins Kristján Jóhanns. sérstaklega þegar hann söng og túlkaði aríuna Vesti la giubba. Það var eitt sem fór alveg óskaplega fyrir brjóstið á mér og truflaði einnig marga. Þannig var að þegar hljómsveitin spilaði Intermezzo kaflann, en þetta er viðkvæmasti og einn fallegasti kaflinn í óperunni Cavallería R. Þá var einhver í eigin heimi með sinn sælgætispoka og skrjáfaði óspart um leið og hann masaði, maður gerir ekki svona allavega ekki á akkúrat þessum stað. Hefur kannski bara farið af skyldurækni með makanum?
Bíð spennt eftir Ástardrykknum sem sýndur verður í febrúar '09. með Dísellu og Garðari Thor. Fer nú samt örugglega að sjá Hart í bak eftir Jökul Jakobs. áður.
Bloggar | 20.10.2008 | 19:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ætla ekki að ræða um neina kreppu hér, læt aðra um það. Ég er friðelskandi manneskja og vil bara að við íslendingar fáum uppreisn æru sem kemur vonandi sem fyrst. En að öðru.
Helgin var bara æðisleg hjá mér, gat ekki á mér setið og skrapp eftir nokkuð erfiða vinnuviku á 4x4 sýninguna sem ekki klikkaði. Eyddi nótt í Laugardal á græjunni og í bítið skrapp ég í laugarnar, myndaði svo í Laugardalsgarðinum eftir hádegi, síðan farið suður með sjó að Keili þar sem náttúran var teyguð í botn með stjörnum og norðurljósum. Sunnudagur nokkuð þungbúinn en spakur, tók rúntinn út á Vatnsleysuströnd og þá var komið kvöld. Ég orðin endurnærð og tilbúin í nýja vinnuviku.
Farin að huga að næstu helgi. Set nokkrar myndir hér til hliðar.
Bloggar | 14.10.2008 | 22:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Komin heim eftir síðustu skipulögðu ferð Húsbílafélagsins. Þetta var nottlega grand hjá þessum elskum eins og vanalega. Veðrið var bland í poka eins og sól, heiðskýrt, 8-9. stiga frost, norðurljós, logn, slydda, él, snjókoma, rigning og rok. Humm, já veðrið lætur sér ekki segjast frekar en krónan. Sem betur fer er ég búin að fjárfesta í kuldagalla.
Set inn nokkrar myndir.
Ég er nú ekki hætt að ferðast í vetur enda komin á negld vetrardekk svo ég komist eitthvað þegar snjóar og veturinn í algleymingi. Nú vantar bara kerru með snjósleða aftan í húsbílinn svona til að fullkomna vitleysuna.
Nú er vinnuvikan framundan og ætla ég nú bara rétt að vona að eitthvað fari nú að gerast hjá ríkistjórninni, að nú komi alvöru aðgerðaáætlun svona áður en fólkið í landinu verður gjaldþrota.
Sá það í mogganum áðan að hugsanlega á að lengja samningatímann. sjálfur. Hver á að borga skuldirnar? Verðtrygginguna, okurvextina?? ef á að svelta öll laun.
Hvað með Leikskólakennara sem eru með lausa samninga 1. des. næstkomandi. Eiga þeir ekkert að fá neina leiðréttingu, ekki veitir nú af. Eiga alþingismenn bara að fá launahækkanir.
Það verður fróðlegt að fylgjast með hvað kemur út úr þessu öllu.
Vil minna á þáttinn hans Egils Helgassonar, held að hann sé endurtekinn í kvöld. Þar ber eitt og annað á góma sem vert er að hlusta eftir.
Bloggar | 5.10.2008 | 19:26 (breytt kl. 19:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Jæja nú er hann farinn að snjóa og ég sem hélt að það væri haust til 24. október. snjórinn byrjaði að detta niður úr loftinu hér í Njarðvíkunum kl. 18:40 og enn snjóar.
Eins gott að ég er með pantaðan tíma á dekkjaverkstæði í fyrramálið kl. 08. láta setja ný dekk fyrir veturinn. Þar fýkur hundraðþúsundkallinn.
Nú eru í sjónvarpinu eldhúsdagsumræður og er Steingrímur að láta gamminn geysa. Kennir ýmsum um ófarir þjóðarskútunnar, lekandi bátur segir hann og ég sem hélt að báturinn væri að sökkva.
Ætla ekki að missa svefn yfir þessu ástandi eins og einn fjárfestir sagði þegar hann hafði tapað nokkrum miljörðum eftir að ríkið tók yfir bankann. Ég hef vinnu og ef allt fer á versta veg þá bara hirða þeir kofann og bílinn, ég mun svo kannski leigja hjá þeim sem eiga allt eða flytja úr landi.
Nú er ég að undirbúa helgarferð á húsbílnum og ætla ég mér að mynda haustliti, en ef snjóar eitthvað mikið verða þetta bara vetrarmyndir. Kannski verð ég veðurteppt fyrir austan.
Veðurfróðir segja að veturinn verði harður og snemma á ferðinni. Sagan segir að mýsnar hafi hópast í skóla einn hér fyrir sunnan í ágústbyrjun, ég hélt að þær ætluðu nú bara að setjast á skólabekk blessaðar. Púff, ég fjárfesti mér bara í einum kuldagalla um síðustu helgi til að vera örugg á milli staða þegar kuldahrollurinn kemur.
Bloggar | 2.10.2008 | 20:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar