Þá er blessað haustið komið og nú fer að kólna þegar sólin fer að skína, kuldahrollur hefur verið að læðast að mér síðan ég heyrði fréttir af fundi seðlabankastjóra og þeirra sem eiga að stjórna. þetta eru allt rosa töffarar sem eru alltaf að funda um eitthvað sem við máttum ekki vita, en er komið á daginn núna. Einmitt eitt stykki banki að falli kominn og hvað svo? Ríkið hleypur undir með gífurlegri fjárhæð. Fjármálakreppan mikla. Mörg heimilin að fótum komin vegna skuldbindinga hver bjargar þeim, örugglega ekki ríkisstjórnin.
Hvenær koma svo skömmtunarseðlarnir, ætli bankarnir úthluti þeim þegar ekki er hægt að kaupa vörur eða þegar fyrirtækin í landinu eru hætt framleiðslu á nauðsynjavöru. Ekki finnst mér vera bjart haust eða vetur framundan. Þannig að kuldahrollurinn er kominn til að vera. Er Davíð þá maður dagsins eða næturinnar, svei mér þá. Aðaltöffarinn.
Bloggar | 29.9.2008 | 18:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fjör færðist heldur betur í bloggið hjá mér í gær eftir að ég tjáði mig um rússana og er það bara frábært. Takk fyrir það þið sem kvittuðu fyrir.
Ég hef verið eitthvað svo önnum kafinn eftir að ég byrjaði að vinna 100% vinnu að tölvan hefur nánast gleymst. Eða ég svona af mér gengin að ekki er til nokkur orka í bloggið.
Ætlaði að kíkja í réttirnar um helgina en vinnan tekur líkamlegann toll og því er ég bara heima, enda er veðrið ekki til að ferðast mikið, rok og rigning aðra helgi í röð.
Ég man að í fyrra haust fór ég ekkert í október vegna leiðinda veðurs, en ég hef undanfarin haust verið að ferðast um helgar fram í nóvember.
Haustið er yndislegur tími, þá er gaman að fylgjast með haustlitunum koma smátt og smátt og fer hamförum á myndavélinni, tek oft um og yfir þrjú hundruð myndir bara af haustlitum. Vill til að ég get eitt út því sem ekki er gott.
Nú er ég komin á tölvert yngri bíl en í fyrra (en sá gamli var þrítugur) og kallast svona bílar oft "pappakassar". Ég er ekki farin að treysta þessum í miklu roki en hann er nú samt yfir þrjú tonn að eigin þyngd og ætti ekki að fjúka svo létt. Það er bara ekki eins gaman að vera í húsbíl þegar ekki er hægt að vera mikið úti eins og að sitja í kvöldkyrðinni eða fylgjast með norðurljósunum. Ég hef all nokkrum sinnum setið úti í allt að átta stiga frosti og logni með smá viðarkubb á útiarninum. Vonandi kemur einhverja helgina gott og stillt veður.
Bloggar | 20.9.2008 | 18:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Já manni dettur það sossum í hug að þeir bíði eftir tækifæri til að koma hingað og nota hvert tækifæri til þess að spæja í kringum þessa litlu eyju okkar. Það er ekki hægt að treysta þessum herrum sem stjórna þar. Eins gott að einhverjir stugga við þeim.
![]() |
Rússar flugu í gegn í gær |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 19.9.2008 | 19:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Frábær helgi að baki og vonandi allir sáttir. Rosalega mikið af fólki og leið mér eins og í stórborg. Hélt hreinlega að ég væri komin til Bretlands þegar ég sá nýja hringtorgið sem hlaut nafnið Lundúnatorg.
Eitt er víst að mikið er af listamönnum hér á suðurnesjum, ekki veit ég hve margar listsýningar ég kíkti á einar þrettán og ekki fór ég á nærri allar.
Tónleikarnir í Bíósalnum þar sem Bylgja Dís, Jóhann Smári og Dagný fóru á kostum að ógleymdri Geirþrúði sem studdi vel við með píanóleik sínum.
Akstur gamalla glæsivagna niður Hafnargötu og mótorhjólanna var ógleymanleg stund. Kannski fá gamlir húsbílar að fljóta með næst, minn gamli þrjátíu ára Benz hefði nú sómt sér vel þarna.
Fjölskyldur og vinir hittast og maður er manns gaman. Hlakka til næstu Ljósahátíðar.
Á reyndar eftir að heimsækja skessuna í hellinn, geri það bráðlega.
Set inn nýjar myndir frá helginni.
Bloggar | 8.9.2008 | 19:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mikið rosalega er búið að vera gott veður hérna á suðurnesjum það sem af er þessari viku og ég er svo þakklát í hjarta tuðrunni yfir því.
Maður er hálf dasaður eftir vinnudaginn enda búin að vera í ferðagírnum í allt sumar og lítið gert annað en að svamla í sundlaugum landsins.
Vona bara að helgin verði ekki eins vætusöm og sú síðasta. Skrapp og kíkti á Sandgerðisdaga um þá helgi sem var ansi blaut.
Nú í fyrramálið verður Ljósanótt sett og munu grunnskólabörn og elstu leikskólabörnin hér fyrir sunnan sleppa blöðrum af því tilefni, já mikið að gerast hérna í Reykjanesbæ. Nú þarf ég að athuga með ljósaseríurnar mínar sem ég ætla að hafa í gluggunum til hátíðarbryggða, þetta er jú ljósanætur framundan.
Bara gleði og glaumur og ekki læt ég deigan síga, heldur arka af stað á listsýningar, tónleika og svo að hitta vini og kunningja á förnum vegi. Kannski hitti ég líka eitthvað af fjölskyldumeðlimum.
Bara draumahelgi framundan.
Dýrðardagar.
Bloggar | 3.9.2008 | 18:49 (breytt kl. 18:55) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þá er ég búin með fyrsta daginn á nýjum vinnustað. Er að æfa mig í að muna nöfn nemenda og staffsins.
Sótti síðan systurnar aðra í grunnskólann og hina á leikskólann því mamman er í skóla á Reykjavíkursvæðinu og er trúlega á brautinni núna. Jamm allir hafa nóg að gera.
Meira síðar.
Bloggar | 1.9.2008 | 17:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar