Nýjar myndir frá síðustu helgi afmæli.

Haldið var upp á afmæli tveggja fjölskyldumeðlima um helgina en þau mæðginin Íris og Ari áttu afmæli þann 18. og 19. nóv.  Mikil veisla, fullt af fólki og gott að borða.

ASÍ fundur í Reykjanesbæ.

 

 Hverjum er ASÍ að þjóna, örugglega ekki launþegum þessa lands.

Hvernig væri ef verkalýðsforistan og ráðamenn þjóðarinnar væru með sömu laun og verkalýðurinn, er ansi hrædd um að þá myndi ýmislegt breytast ef laun þeirra yrðu lækkuð.

Ég vil lifa í núinu.

Nú verður að stöðva verðtrygginguna og það strax áður en allt verður komið til andskotans.Devil


mbl.is Líflegur ASÍ-fundur í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagur íslenskrar og Garðskagi.

 Dagur íslenskrar tungu að kvöldi komin, en ég lagði mitt að mörkum til hans á föstudaginn þegar ég ásamt fríðu föruneyti heimsóttum Heiðarskóla og fluttu nemendur hvor fyrir aðra skemmtilega dagskrá Jónasi til heiðurs.

Skrapp á laugardag út að Garðskaga og átti skemmtilegan vinafund. 

Ég ætlaði nú ekkert að fara þessa helgi því ég fékk einhverja óáran á föstudagsmorgun sem kallast víst búkhlaup, en hlaupið kom og fór svo ég var orðin ágæt á laugardagsmorgun og ákvað því að kíkja á félaga mína sem voru í 17. metrum á Garðskaga um nóttina og með snert að húsbílariðu.

 Það var bara yndislegt á laugardagskvöldið logn og blíða en engin norðurljós. Shocking Hvar voru þau?  jæja það þýðir ekki að fást um það, kem örugglega aftur og vitja um þau. 

Það er góð aðstaða þarna og hægt að fá rafmagn, heitt vatn og svo var annað klósettið opið, kaffihúsið Flösin var opið að deginum, einnig er þarna safn sem vert er að skoða. Já sannarlega gott að koma þarna. Um næstu helgi er svo málþing og þjóðhátíð í tilefni eitthudnrað ára afmælis og verður þá heilmikið um að vera í  Garðinum.

Set inn nokkrar myndir.


Íslenskt, já takk!!

Það skildi þó ekki verða að á litla íslandi fyndist olía, undir eða við landið, hvaða þýðingu hefði það fyrir okkar skuldsetta land? 

 Nú er eins gott að halda rétt á spilunum. 

Á ekki bara að gefa Evrópuþjóðunum langt nef?  Ekki hafa þær verið svo ötular nú við að hjálpa okkar landi frekar en breska ljónið. 

Ætli við eigum bara nokkra vini í heimi hér? 

 Nema kannski Rússa og Kínverja.

Við erum kannski betur sett ef við gætum verið sem mest sjálfbær. 

Nú eru bændur farnir að rækta eitt og annað sem ekki var til fyrir einhverjum árum og er það frábært, einnig íslenska hugvitið.

  VELJUM ÞVÍ ÍSLENSKT.

Ég hvet íslendinga til að sneiða hjá erlendum vörum og efla okkar landbúnað og íslenska framleiðslu.  Atvinnulífið þarfnast þess og fyrirtækin þurfa á okkur að halda. Við eigum ekki að flytja neitt inn næstu mánuði nema það sem nauðsynlegt er.

Nú er erfiður tími framundan hjá mörgum fjölskyldum og hvet ég þá sem eru aflögufærir að gefa hinum með sér. Heart 

Knús og faðmlag til allra Heart 

Brosum í gegnum tárin og verum bjartsýn.  HeartGrin

 

 


SPILLING, SPILLING, SPILLING!

Já það viðgengst mikil spilling hér á þessu litla landi.  Var að lesa á vísi.is og eyjunni.is um bankaprinsana í Kaupþingi og einnig um að Kaupþing hafi bara rétt sí svona strikað út með einu pennastriki skuldir háttsettra bankamanna hjá þeim.  Hvar endar þetta? Lesið þetta þið sem hafið aðgang að netinu.Angry

Glæpur segi ég, ekki fæ ég að svona fyrirgreiðslu hjá þeim, eða í öðrum banka nei ekki aldeilis.  Nú verða landsmenn að rísa upp hingað og ekki lengra. 

ÞAÐ VERÐUR AÐ TAKA VERÐTRYGGINGUNA ÚR SAMBANDI EKKI SEINNA EN STRAX ÁÐUR EN HÚN GERIR FÓLKIÐ Í LANDINU AÐ ÖREIGUM. Devil aaaaarrrrgggggg.

 

 


Hrekkjavakan komin til að vera!

Já, já, já, það finnst mér sko í lagi að við gerum okkur dagamun og klæðumst fötum sem við erum ekki vön að ganga í svona hvunndags.  Alien Heart Ninja

Ég styð hrekkjavöku samkuntur, ekki veitir af að létta lundina á þessum annars erfiðu tímum. Grin  HeartKnús og faðmlag til ykkar sem tókuð þátt í hrekkjavökunni um helgina. Heart


mbl.is Hrekkjavökusvipur á skemmtunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Halloween eða halló-vín!

Það er í dag sem hinn árlegi halloween Wizard   dagur er haldinn og veit ég um að  hérna ekki langt frá verða alls kyns forynjur og púkar á sveimi ásamt nornum og fleira hyski í halló-vín gleði. Devil Eins gott að læsa að sér í nótt. Ninja  Systurnar eru hjá mér og ætla að gista og það verður sko kósý kvöld hjá okkur kertaljós, snakk og bíó. Ætlaði að bjóða þeim að gista í húsbílnum en veðrið er ekki alveg nógu spennandi þessa stundina svo þær gista bara síðar í honum. Meira síðar, því ekki þýðir fyrir barnfóstruna síkátu að vera í tölvunni set hana því bara í töskuna góðu eins og svo margt annað.Grin

 


Dagsferð til borgarinnar!

Kalt  brrrr hann bítur enda fer að styttast í fyrsta vetrardag sem er á laugardag og þá má búast við veðri af ýmsum gerðum.  Vona bara að verði ekki eins mikill snjór eins og síðasta vetur. Frown

Ég skrapp til borgarinnar í gær en fór ekkert í búðir, að vísu kom ég við í einni verslunarmiðstöð en þegar ég sá fjöldann þar inni sneri ég við, var einhver að tala um kreppu? W00t

Óperan sýndi Cavalleria Rusticana og Pagliacci í gærkvöldi og held ég að þetta hafi verið síðasta sýningin á þessum verkum. Ýmislegt mátti nú betur fara verð ég að segja, en mér fannst Eyjólfur Eyjólfs. sem skilaði sínu mjög vel sem Peppe og eins Kristján Jóhanns. sérstaklega þegar hann söng og túlkaði aríuna Vesti la giubba.  Það var eitt sem fór alveg óskaplega fyrir brjóstið á mér og truflaði einnig marga. Þannig var að þegar hljómsveitin spilaði Intermezzo kaflann, en þetta er viðkvæmasti og einn fallegasti kaflinn í óperunni Cavallería R. Þá var einhver í eigin heimi með sinn sælgætispoka og skrjáfaði óspart um leið og hann masaði, Angry  maður gerir ekki svona allavega ekki á akkúrat þessum stað. Hefur kannski bara farið af skyldurækni með makanum? Gasp 

Bíð spennt eftir Ástardrykknum sem sýndur verður í febrúar '09. með Dísellu og Garðari Thor. Fer nú samt örugglega að sjá Hart í bak eftir Jökul Jakobs. áður.

 


Bloggað í kreppu.

Ætla ekki að ræða um neina kreppu hér, læt aðra um það. Ég er friðelskandi manneskja og vil bara að við íslendingar fáum uppreisn æru sem kemur vonandi sem fyrst.  En að öðru.

Helgin var bara æðisleg hjá mér, gat ekki á mér setið og skrapp eftir nokkuð erfiða vinnuviku á 4x4 sýninguna sem ekki klikkaði.  Eyddi nótt í Laugardal á græjunni og í bítið skrapp ég í laugarnar, myndaði svo í Laugardalsgarðinum eftir hádegi, síðan farið suður með sjó að Keili þar sem náttúran var teyguð í botn með stjörnum og norðurljósum. Sunnudagur nokkuð þungbúinn en spakur, tók rúntinn út á Vatnsleysuströnd og þá var komið kvöld. Ég orðin endurnærð og tilbúin í nýja vinnuviku.

Farin að huga að næstu helgi. Set nokkrar myndir hér til hliðar.


Vonandi góð vika að hefjast!!!!!

Komin heim eftir síðustu skipulögðu ferð Húsbílafélagsins.  Þetta var nottlega grand hjá þessum elskum eins og vanalega.  Veðrið var bland í poka eins og sól, heiðskýrt, 8-9. stiga frost, norðurljós, logn, slydda, él, snjókoma, rigning og rok.  W00t Humm, já veðrið lætur sér ekki segjast frekar en krónan. Sem betur fer er ég búin að fjárfesta í kuldagalla. Smile  Set inn nokkrar myndir.

Ég er nú ekki hætt að ferðast í vetur enda komin á negld vetrardekk svo ég komist eitthvað þegar snjóar og veturinn í algleymingi. Nú vantar bara kerru með snjósleða aftan í húsbílinn svona til að fullkomna vitleysuna.Cool 

Nú er vinnuvikan framundan og ætla ég nú bara rétt að vona að eitthvað fari nú að gerast hjá ríkistjórninni, að nú komi alvöru aðgerðaáætlun svona áður en fólkið í landinu verður gjaldþrota.

Sá það í mogganum áðan að hugsanlega á að lengja samningatímann.  DevilDevil sjálfur. Hver á að borga skuldirnar? Verðtrygginguna, okurvextina?? ef á að svelta öll laun.Angry

Hvað með Leikskólakennara sem eru með lausa samninga 1. des. næstkomandi.  Eiga þeir ekkert að fá neina leiðréttingu, ekki veitir nú af. Eiga alþingismenn bara að fá launahækkanir. Shocking

Það verður fróðlegt að fylgjast með hvað kemur út úr þessu öllu.

Vil minna á þáttinn hans Egils Helgassonar, held að hann sé endurtekinn í kvöld. Þar ber eitt og annað á góma sem vert er að hlusta eftir.Woundering


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband