Ísbirnir eru hættulegir og ekki gott að hafa laust bjarndýr þegar kindur með ung lömbin sín eru komin á túnin í Skagafirði. Hann gæti lifað góðu lífi á sauðfénu þar eða ráðist á nautgripi og hesta. Þó svo að ég sé ekki hlynnt drápum á dýrum svona almennt þá finnst mér gegna öðru með ísbirni. er ekki hægt að skjóta í hann svæfingarlyfi svo að hægt sé að sigla með hann út að ísjaka ef þeir eru einhvers staðar þarna úti á hafi. Ekki drepa Bjössa.
![]() |
Lögregla á slóðum ísbjarnarins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 3.6.2008 | 11:36 (breytt kl. 11:42) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Yndislegur dagur hér á suðurnesjum og örugglega víðar.
Ég er á Mávatjörninni er Nanny og au pair í dag. Eldri heimasætan er búin að vera lasin í nokkra daga en var hitalaus í morgun svo að vonandi er þetta að verða búið hjá henni.
Um hádegi læt ég svo renna í heitapottinn og á meðan horfir sú stutta á ævintýramyndina Gyllta áttavitann (The Golden Compass) með Daniel Craig hinum nýja 007 og Nicole Kidman ásamt fríðu föruneyti.
Á meðan lætur amman sólina verma kroppinn, hemm, verð með sólskyggnið á höfðinu svo að fegrunaraðgerðir síðustu ára eyðileggist ekki.
Vonandi verður svo húsbíllinn tilbúinn síðar í dag, en hann er á bíla spítala. Hann verður að vera í lagi fyrir ferðir sumarsins.
En nú fer ég að sinna heimasætunni og þvottavélinni.
Bloggar | 3.6.2008 | 09:45 (breytt kl. 09:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 3. júní 2008
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar