Indælisdagur hérna fyrir sunnan eins og oft er sagt. Eurobandið með lagið, This is my life sigraði í gærkvöldi og líkar mér bara vel við það lag enda eru flytjendur góðir söngvarar og fagmenn fram í fingurgóma. Regína er ein fjölhæfasta söngkona á markaðnum í dag að mínu mati, hef bæði séð og heyrt að hún getur sungið klassík, rokk, blús og allt þar á milli á mjög sannfærandi hátt. Frábær fagmanneskja þar á ferð. Friðrik Ómar er einnig mjög góður og kraftmikill söngvari, en ég þekki minna til hans. Þau eiga bæði góða framtíð í bransanum. Áfram með tónlistarhjalið. Ég hlustaði á mjög skemmtilega tónleika í gær laugardag í Reykjanesbæ. Kvennakór Suðurnesja er 40. ára og mikið eyrnakonfekt þar á ferð. Þar sungu einnig fyrrverandi félagar tvö lög með kórnum. Eftir hlé kom svo Léttsveitin með undir stjórn Karenar og nú fór sko flott sveifla af stað, kvennakórskonur stormuðu í salinn undir spili léttsveitar og voru þá komnar í Gala kjóla stutta og síða. Upphófst nú mikil söngveisla með lúðra, trommu og gítarhljómum. Þetta var viðburðaríkur dagur hjá mér því að afhending á splunkunýju húsnæði var afhent kl. 13:00. Glæsileg íbúð og bara að flytja inn, en hef hugsað mér að flytja í dag á sunnudegi til sælu, þó að margt smálegt hafi farið inn í gær á laugardegi til lukku. Já ég óska mér góðra daga þarna í framtíðinni.
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.