Mitt ríkidæmi!

Já mitt ríkidæmi fellst aðallega í kössum þessa daganna.  Hvað ég get safnað miklu dóti á stuttum tíma,  Blush  hún er alveg mögnuð þessi söfnunar og kaupárátta.  Ætli þetta sé ættgengt, ég held það bara svei mér þá.  Ég vorkenni nú bara niðjum mínum ef þeir erfa þetta sem ég hef nú grun um að sumir hverjir geri. Er að hugsa um að taka upp naumhyggjustílinn og gefa það sem ég hef ekki not fyrir. Þeir sem áhuga hafa geta svo farið með það í Kolaportið og náð sér í nokkrar krónur.  Ég skal svo koma og kaupa, hehehe.GetLost jæja en nú er ég handlama á hægri hönd eftir kassaburðinn svo að nú gengur heldur hægt að taka upp úr þeim.   Whistling   Er nú bara alsæl í mínum kassabúskap.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þitt ríkidæmi er nú ekki bara í kössum, vinkona. Þú átt yndislega, samhelda fjölskyldu og fullt af vinum.

Fyrir utan það, áttu óteljandi eðalstundir framundan  á nýju "Græjunni" þinni og sólríka vist og hvíld á nýja heimilinu þínu. Innilega til hamingju með allt nýtt (og gamalt). Sveina

Sveina (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 21:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband