Gleðilegt sumar eða skelfilegt sumar?

Kæru börn, ömmubörn og lömmubarn, systur, vinir, frændgarður og félagar nær og fjær.  Gleðilegt sumar öll sömul, ætla ekkert að þakka veturinn, suma sá ég aldrei svo að það er ekkert að þakka fyrir, grínLoL  Ég var svo glöð með lífið og tilveruna í morgun en þegar ég opnaði einkabankann og sá hvað verðbólgan leikur mig grátt (ég var rænd) dró svart ský fyrir sólu. Brosi bara í gegnum tárin og borga mitt. Ef ég á ekki fyrir afborgunum þá verð ég bara að tala við Úrsúlu vinkonu mína hugsaði ég. Hækkunin nemur um tuttugu þúsundum bara þennan mánuð og ég sé að húsnæðislánið hækkar um ca. 100 þúsund á mánuði þannig að ef verður áfram verðbólga og vísitölutrygging verð ég bara tekin upp í skuld hjá sjóðnum eftir einhvern tíma.  Hvað með fólk sem er með 80-100%lán.  Við sitjum uppi með handónýta útlaga-ferðasjúka-ríkisstjórn.    Er ísland á leið til helvítis, er það þess vegna sem stjórnendur eru alltaf í útlöndum að búa í haginn fyrir sig þegar þeir svo flýja þetta skatt og vísitölu pínda land. Hvað ætla þeir að gera? Þjóðin er búin að vera á fylleríi í nokkur ár og enginn gerir neitt til þess að spyrna við á nokkurn hátt. Grunnskólakennarar komnir með einhvern kjarasamning, það verður fróðlegt að lesa hann. Jæja nóg af þessu, maður hefur nú frjálsa  hugsun en hversu lengi það verður  áður en hún verður skattlögð. Arrrgggg DevilAngry  Hvað ætli verði langt þangað til fólk flytur í Laugardalinn, þar eru komnir nokkrir fastir íbúar sá ég í gær og frétti að þeir væru komnir með lögheimili þar frá því í vetur. Já heimur versnandi fer. Sick


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rosaleg

Iss - þetta er handónýtt gjaldmiðill og fjárhagskerfi á þessu landi - manni er skapi næst að pakka saman og koma aldrei aftur!!  Hvað ælti margir þurfi að fara á hausinn áður en gripið verður til einhverra róttækra aðgerða?  Mér er spurn.........dæs.......æjá............

.......kveðja úr skólabókaflóðinu í því neðra

Rosaleg, 28.4.2008 kl. 23:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband