Snjókoma að hausti!

Jæja nú er hann farinn að snjóa og ég sem hélt að það væri haust til 24. október. W00t snjórinn byrjaði að detta niður úr loftinu hér í Njarðvíkunum kl. 18:40 og enn snjóar.

Eins gott að ég er með pantaðan tíma á dekkjaverkstæði í fyrramálið kl. 08. láta setja ný dekk fyrir veturinn. Frown Þar fýkur hundraðþúsundkallinn. GetLost 

Nú eru í sjónvarpinu eldhúsdagsumræður og er Steingrímur að láta gamminn geysa. Kennir ýmsum um ófarir þjóðarskútunnar, lekandi bátur segir hann og ég sem hélt að báturinn væri að sökkva.

Ætla ekki að missa svefn yfir þessu ástandi eins og einn fjárfestir sagði þegar hann hafði tapað nokkrum miljörðum eftir að ríkið tók yfir bankann. Ég hef vinnu og ef allt fer á versta veg þá bara hirða þeir kofann og bílinn, ég mun svo kannski leigja hjá þeim sem eiga allt eða flytja úr landi.

Nú er ég að undirbúa helgarferð á húsbílnum og ætla ég mér að mynda haustliti, en ef snjóar eitthvað mikið verða þetta bara vetrarmyndir. Kannski verð ég veðurteppt fyrir austan.Errm

Veðurfróðir segja að veturinn verði harður og snemma á ferðinni. Sagan segir að mýsnar hafi hópast í skóla einn hér fyrir sunnan í ágústbyrjun, ég hélt að þær ætluðu nú bara að setjast á skólabekk blessaðar.  Púff, ég fjárfesti mér bara í einum kuldagalla um síðustu helgi til að vera örugg á milli staða þegar kuldahrollurinn kemur.Frown

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Blessuð Vallý!

Já það er komin "vetur" kemur alltaf smá skot svona til að láta okkur vita að það er allra veðra von. Mér finnst alltaf gaman þegar snjórinn er. Kvíði ekki vetrinum.  Ég  fæ örugglega sting í hjartatuðruna ef og þegar ég mæti minni gömlu næsta sumar.  Eigðu góða helgi, ég fer beint eftir vinnu í sveitina. Kv. María.

María (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 10:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband