Sveinki!!

Hvað eru ekki allir jólasveinar farnir úr byggð?

Það eru auðvitað til villuráfandi jólasveinar í borginni eins og framsóknarmenn sem ráfa á milli flokka í þeirri veiku von að fá eitthvað feit embætti. Ninja 


mbl.is Lá við að fundurinn leystist upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ástþór Magnússon Wium

Kommúnistar báru jólasveininn út af Opnum borgarafundi

Ástþór Magnússon í búningi jólasveinsins Ég gekk að dyrunum, fjöldi svartklæddra öryggisvarða í skeggræðum og ég smeygði mér hljóðlega framhjá þeim grímuklæddur sem jólasveinninn.

Barði stafnum hennar mömmu minnar sálugu í gólfið og hrópaði "Fær jólasveinninn að tala hér?"

Mikið fát kom á Gunnar leikstjóra sem hótaði að slíta fundinum ef jólasveinninn fengi orðið.  Ekki mátti heldur afhenda lögreglustjóra kærugjafir úr poka sveinka.

Eftir vel æfðum handabendingum af leiksviðinu var ég um leið umkringdur svartklæddum öryggisvörðunum sem tóku sig til og í orðsins fyllstu merkingu báru jólasveininn út af Opnum borgarafundi undir hrópum mínum "Það er verið að bera jólasveininn út af fundinum"

Kommúnistar fjarlægja fundargest Þegar út í bíl var komið og búið að taka niður skegg-grímu sveinka komu aðvífandi nokkrir fundargesta og sögðu að búið væri að "kjósa þig" inná fundinn. Ég gekk með þeim til baka að hurð leikhússins en þar biðu þá aftur öryggisverðirnir, nú ekki eins utangátta, og vörnuðu mér inngöngu.

Segir þetta ekki allt sem segja þarf um leiksýninguna Opinn borgarafund?

Útilokað er að byggja nýtt Ísland á grímuklæddum leiksýningum og sovét-fasískum vinnubrögðum. 

Ástþór Magnússon Wium, 8.1.2009 kl. 22:05

2 identicon

Já það er víða róstur í þjóðfélaginu og það  blóðug má segja þar sem Guðlaugur ráðherra  kemur þessa dagana.

 Það sem mér finnst hryllilegt er að grímuklæddir menn og konur fá að tala en ekki jólasveinninn. Það er ekkert réttlæti orðið til á landinu.

Það sannast hér máltækið um Jón og séra Jón.

María (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 22:12

3 identicon

Ef forsetinn hefði mætt, þá hefði rauði dregillinn verið dreginn út, allir buktað sig og beykt. En úr því þetta var Ástþór Magg. þá varð allt spinnegal?

joi (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 22:24

4 identicon

Hverju var Ástþór að mótmæla??

 Örugglega ekki því sama og allir hinir, hvort sem þeir voru með grímu eður ei !

  

cc (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 23:13

5 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Af hverju er Ástþór að spila sig stórann?

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 8.1.2009 kl. 23:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband