23. JÚNÍ.

Jæja þá er best að blogga smá hérna en nú er ég aðallega á Facebook eða bókinni.

Þetta er merkisdagur í minni fjölskyldu því fyrir 17. árum fæddist hún Berglind Nanna og fagnar nú deginum með ökuskírteini upp á vasann. Þessi elska tók bílprófið í fyrradag og fékk skírteinið á afmælisdaginn sinn og vona ég að gæfa í akstri á vegum landsins fylgi henni hvert sem hún ekur. Til hamingju með daginn elskan.HeartKissing

Nú svo er Jónsmessan framundan og er það ekki ein magnaðasta nótt ársins nú í nótt, en þá er sagt að Kýrnar tali mannamál og Selir skelli sér úr ham sínum, en einhvers staðar las ég það fyrir margt löngu.

Svo að nú fer maður bara út í nóttina og veltir sér upp úr dögginni sem á að vera mjög svo heilnæmt.Happy

Á laugardaginn 20. júní fór ég á Austurvöllinn á fundin þar sem hagsmunasamtök heimilanna  var að mótmæla meðal annars Icesave og fl. Þar var hiti í fólki og sprengjur sprungu, bumbur barðar og hróp og köll landans sem ekki er ánægður með störf ríkisstjórnarinnar.  Frown Þetta var mikil upplifun fyrir mig dreifbýlinginn.

Nú fer að koma að sumarfríi hjá mér InLove og þá verður nóg að gera við ýmiskonar sýsl er til fellur eins og að rækta garðinn, lesa, láta sig dreyma um margt sem ekki getur gerst í dag.Whistling

Með von um að þú eigir gott sumar þrátt fyrir krepputíð. Smile  Cool

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband