Fallegt veður lokkaði mig út í kvöld.

Veðrið þessa daganna er bara dásamlegt, birtan og sjónhverfingar skýja og norðurljósa einnig hvað stirnir fallega á hvíta fönnina dettur mér í hug sykur. Já ekki hægt að kvarta yfir veðrinu nema kannski full mikið frost.

Hér kemur smá lífsreynslusaga frá kvöldinu. W00t

Skellti mér út í nokkra tíma og andaði að mér fersku lofti meðal annars í Sólbrekkuskógi og þar sem ég var að taka myndir þá skynja ég allt í einu að eitthvað stóð við hliðina á mér og Guð hvað mér brá, þarna var kominn stór hundur sem góndi á mig og varð mér ekki um sel, flýtti mér inn í bíl þangað til hann var farinn þá hætti ég mér aftur út en þar sem ég stóð undir gafli bílsins kom eitthvað stórt að mér og þá fyrst brá mér því þarna var kominn úlfur að mér sýndist en það var farið að dimma mikið svo ég sá ekki alveg nógu vel, en þar sem ég stóð þarna og horfði í augu úlfsins þá kom hann nær en ég flúði inn í bíl aftur og sá nú betur þegar ég kveikti útiljósið að þetta var úlfahundur grár að lit. Eitt er víst að ég fer ekki ein þarna aftur að kvöldlagi því þarna virðast vera villtir hundar sem búa í skóginum svei mér þá.  Frown Já ég varð bara ansi smeyk svo ég fór bara burtu af staðnum.

Þá lá leiðin út í Bláa Lón en þar var svo mikil ljósamengun að ég keyrði til Grindavíkur og tók smá fjörurúnt. Þar voru smá norðurljós og naut ég þess í botn að horfa á þau dansa á himnum. Stjörnurnar, tunglið og Venus sáust vel þarna í myrkrinu.

Þá lá leiðin heim á leið en þegar ég var að keyra inn í Innri Njarðvík sá ég einnig að norðurljósin leiftruðu þar svo ég skellti mér út á ný og tók nokkrar myndir, en þá var komið ansi mikill vindur svo að ekki var gott að taka myndir á þrífótinn, náði samt nokkrum.

það er alltaf gott að fara út til að viðra sig og nú er það lífshlaupið sem ég ásamt öðrum er að taka þátt í og nú er lágmarks hreyfing hálf klukkustund á hverjum degi því að nú er ég komin í hóp sem kallar sig englakroppar og verð ég því að standa undir nafni. GetLost 

 þíðir ekkert annað.IMG_1128Norð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Sælar! Mér brá ekkert smá skal ég segja þér sérstaklega þegar úlfhundurinn kom.

Já ég ætti að gera það því þetta voru tveir hundar á stuttum tíma og ef þeir eru svangir er ekki gott hverju þeir gætu tekið uppá.

Ég veit að þetta er vinsæll útivistarstaður og fólk er þarna með börn því að nú eru komin svo fín leiktæki þarna.

María (IP-tala skráð) 5.2.2009 kl. 08:14

2 identicon

Hugsaður þér bara!! Þeir hefðu getað gleypt Tinna í einum bita! Greyin að vera þarna út í frostinu. Þú þarft að láta yfirvöld vita af þessu. Kannski eru þetta týndir heimilishundar. Maður veit aldrei.

Myllfríður Högnadóttir (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 11:12

3 identicon

Uss það hefðu þeir svo sannarlega getað gert.  Vona að eftirlitsmaðurinn hafi bara fundið þá en ég tilkynnti um þetta strax um morguninn. Ætla að hringja á mánudag og ath. hvort þeir hafi fundið eitthvað á vettvangi.

María (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 22:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband