Upprisin!!

 Ég er upprisin Halo  úr flensupest orðin hitalaus en slæm er ég enn fyrir brjósti og í maga. Fékk einhverjar þrjár djúpsprengjur sem virkuðu ansi vel og hafði ég upp úr því búkhlaup mikið.Sick

Þá er bara að pústa sig og fara svo til "doksa" í vikunni og láta hlusta.  

Hún er ekkert grín þessi pest, svo nú verður maður að fara varlega svo ekki slái mér niður, nóg er að vera búin að liggja í sjö daga.

Drottinn minn og bakið gjörsamlega búið eftir alla leguna, sem sagt maður er í hálfgerðu rusli. Blush

Ég skrapp í fyrst skiptið út eftir hádegi og trítlaði til frumburðarins sem býr hérna á næsta horni, en ég var bara að athuga þolið sem er ekki mikið þessa stundina en Það kemur hægt og sígandi.

Ég ætla til vinnu í fyrramálið svo framalega að mér versni ekki í nótt.

Bolludagur á morgun og ekki veitir mér af að fá smá rjóma eftir öll kílóin og vöðvamassann sem ég búin að missa á einni viku og tvær buxnastærðir svei mér þá.Halo

Nú er illt í efni, árshátíð um næstu helgi og ég á ekkert til að vera í því fötin hanga utan á mér. Frown 

Get ekki hætt á að missa niður um mig pilsið eða buxurnar svo ég er að hugsa um að mæta á sundbol innst sem ég get svo hengt einhverja of stóra fatalarfa yfir. Verð þá bara ódýrt skemmtiatriði.Whistling  Össsösss.

Upp með heilsuna. Grin

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Vallý mín og til hamingju með daginn þó seint sé.

Já þetta hefur verið erfið vika og ég man bara ekki eftir að hafa orðið svona veik. Fékk allan pakkan og er enn ekki orðin góð.

Vona bara að þú fáir þetta ekki með þinn astma.

Kveðja María.

María (IP-tala skráð) 22.2.2009 kl. 22:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband