Sló barn utan undir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 14.3.2009 | 09:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ég er upprisin úr flensupest orðin hitalaus en slæm er ég enn fyrir brjósti og í maga. Fékk einhverjar þrjár djúpsprengjur sem virkuðu ansi vel og hafði ég upp úr því búkhlaup mikið.
Þá er bara að pústa sig og fara svo til "doksa" í vikunni og láta hlusta.
Hún er ekkert grín þessi pest, svo nú verður maður að fara varlega svo ekki slái mér niður, nóg er að vera búin að liggja í sjö daga.
Drottinn minn og bakið gjörsamlega búið eftir alla leguna, sem sagt maður er í hálfgerðu rusli.
Ég skrapp í fyrst skiptið út eftir hádegi og trítlaði til frumburðarins sem býr hérna á næsta horni, en ég var bara að athuga þolið sem er ekki mikið þessa stundina en Það kemur hægt og sígandi.
Ég ætla til vinnu í fyrramálið svo framalega að mér versni ekki í nótt.
Bolludagur á morgun og ekki veitir mér af að fá smá rjóma eftir öll kílóin og vöðvamassann sem ég búin að missa á einni viku og tvær buxnastærðir svei mér þá.
Nú er illt í efni, árshátíð um næstu helgi og ég á ekkert til að vera í því fötin hanga utan á mér.
Get ekki hætt á að missa niður um mig pilsið eða buxurnar svo ég er að hugsa um að mæta á sundbol innst sem ég get svo hengt einhverja of stóra fatalarfa yfir. Verð þá bara ódýrt skemmtiatriði. Össsösss.
Upp með heilsuna.
Bloggar | 22.2.2009 | 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Já ætli ég bregði ekki bara undir mig betri fætinum og skelli mér til Reykjavíkur til að upplifa menningu á Vetrarhátíð.
Ætlaði á Þingvöll en veðrið býður ekki upp á mikla útivist.
Rok og rigning
Nei þá vil ég frekar frostið.
Annars getur maður ekki kvartað yfir þessum góða vetri, er ekki búin að gleyma vetrinum á undan, alltaf hálf vitlaust veður.
Guð hvað ég var orðin þreytt á þeim veðrum.
En nú klæðir maður sig bara eftir veðri og þrammar um í menningu Sódómu Reykjavíkur og drekkur í sig gómóruna.
Eigið góða helgi vinir og vandamenn.
Bloggar | 12.2.2009 | 22:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Dorrit er flott kona og hún lætur ekki Ólaf segja sér hvað hún má segja.
Ólafur ætti að hlusta betur á sína spúsu.
Dorrit segist lengi hafa varað við fjármálahruni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 9.2.2009 | 19:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Veðrið þessa daganna er bara dásamlegt, birtan og sjónhverfingar skýja og norðurljósa einnig hvað stirnir fallega á hvíta fönnina dettur mér í hug sykur. Já ekki hægt að kvarta yfir veðrinu nema kannski full mikið frost.
Hér kemur smá lífsreynslusaga frá kvöldinu.
Skellti mér út í nokkra tíma og andaði að mér fersku lofti meðal annars í Sólbrekkuskógi og þar sem ég var að taka myndir þá skynja ég allt í einu að eitthvað stóð við hliðina á mér og Guð hvað mér brá, þarna var kominn stór hundur sem góndi á mig og varð mér ekki um sel, flýtti mér inn í bíl þangað til hann var farinn þá hætti ég mér aftur út en þar sem ég stóð undir gafli bílsins kom eitthvað stórt að mér og þá fyrst brá mér því þarna var kominn úlfur að mér sýndist en það var farið að dimma mikið svo ég sá ekki alveg nógu vel, en þar sem ég stóð þarna og horfði í augu úlfsins þá kom hann nær en ég flúði inn í bíl aftur og sá nú betur þegar ég kveikti útiljósið að þetta var úlfahundur grár að lit. Eitt er víst að ég fer ekki ein þarna aftur að kvöldlagi því þarna virðast vera villtir hundar sem búa í skóginum svei mér þá. Já ég varð bara ansi smeyk svo ég fór bara burtu af staðnum.
Þá lá leiðin út í Bláa Lón en þar var svo mikil ljósamengun að ég keyrði til Grindavíkur og tók smá fjörurúnt. Þar voru smá norðurljós og naut ég þess í botn að horfa á þau dansa á himnum. Stjörnurnar, tunglið og Venus sáust vel þarna í myrkrinu.
Þá lá leiðin heim á leið en þegar ég var að keyra inn í Innri Njarðvík sá ég einnig að norðurljósin leiftruðu þar svo ég skellti mér út á ný og tók nokkrar myndir, en þá var komið ansi mikill vindur svo að ekki var gott að taka myndir á þrífótinn, náði samt nokkrum.
það er alltaf gott að fara út til að viðra sig og nú er það lífshlaupið sem ég ásamt öðrum er að taka þátt í og nú er lágmarks hreyfing hálf klukkustund á hverjum degi því að nú er ég komin í hóp sem kallar sig englakroppar og verð ég því að standa undir nafni.
Bloggar | 5.2.2009 | 00:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Kominn tími á smá blogg svona til að láta suma vita af sér. Er bara í góðum gír með snjóinn og veðrið, hvernig er annað hægt þegar febrúar mætir með dásamlegu veðri stillum og sól.
Ég var að skoða myndir frá byrjun febrúar í fyrra, vá enginn smá munur á veðrinu það var allt á kafi í snjó og skafrenningur svo að fólk sem keyrir brautina komst ekki til vinnu og ekki heldur þeir sem vinna hér í grenndinni. Hérna voru sem sagt háir skaflar og mjög svo þungfært ef ekki ófært. Vetur konungur er bara í góðu skapi þessa daganna.
Nú eru það Bretar, Frakkar ásamt nokkrum grannþjóðum sem fá slæmt veður. Já nú voru Bretarnir heppnir að fá lobburnar frá okkur, deyja vonandi ekki eins margir úr kulda þar.
Fékk frábært veður á skaganum um helgina tók mikið af myndum, var með góðum félögum og hitti karlmann með sömu dellu og ég.
Næstu helgi verður lítið um ferðalag vegna afmælis og skírnar í fjölskyldunni. Kannski kemst ég eina nótt
Bloggar | 2.2.2009 | 22:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þá er þessi vika langt komin og ansi margt að gerast í stjórnmálum, gengismálum, flutningum, þorrablótum, atvinnumissi og hneyksli hér og þar eins og gengur og gerist.
Ætla ekki að pirra mig meira á pólitíkinni ég hvort sem er fæ engu breytt varðandi þau mál, læt bara aðra um það.
Held bara mínu striki og mæti í vinnuna á virkum dögum og svo í hobbýið um helgar.
Nú eru að koma mánaðarmót og kvíðinn fer að gera vart við sig hjá mörgum því spurningin er, á ég fyrir skuldunum um þessi mánaðarmót? Það eru örugglega margir sem eiga vart fyrir mat þegar búið er að borga skuldirnar sem þarf að borga um þessi mánaðarmót.
Ég var að lesa Dv áðan og þar var viðtal við mann sem er atvinnulaus og átti ekki fyrir mat, hann var búin að svelta í einn og hálfan sólahring því að það sem var til lét hann konuna sína borða, hann þakkaði Guði fyrir að eiga ekki börn. Þessi maður var að leita á náðir fjölskylduhjálparinnar í fyrsta sinn.
Já þetta eru erfiðir tímar hjá mörgum og eiga eftir að verða verri. því margir eru að missa vinnu næstu mánuði. Hvar endar þetta? það veit nottlega enginn.
Nú um helgina er frumburðurinn að flytja hér í nágrennið svo að við verðum "grannar" þá getum við gægjast á hver aðra.
Nú svo skrepp ég auðvitað eitthvað á laugardag ef veðrið verður gott til útivistar og ljósmyndunar en veðurfræðingurinn var að spá einhverjum leiðindum.
Það er töluverður snjór hér svo ef hann fer að vera með einhverja metra í vindi þá er ekki gott færi til aksturs.
Verð að hafa gönguskíðin tilbúin svo ég komist út til nýju grannana.
Bloggar | 29.1.2009 | 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Til að taka að sér stjórn landsins okkar fram að kosningum. UTANÞINGSSTJÓRN.
Ég vil ekki fyrrverandi flugfreyju eða jarðfræðing til að stjórna landinu.
Vill fólkið í landinu áfram hafa þetta flokksveldi?
Vill fólkið í landinu hafa flokksræði en ekki lýðræði?
Við vitum að hér er ekkert þingræði heldur ofræði fárra manna sem vilja ráða og sitja sem fastast hvernig sem og hvað sem hver segir eða gerir.
Hvað verður ef Steingrímur kemst í fjármálin?
Verða skattarnir ekki himinháir líklega eins og þegar skattmann Ólafur Ragnar Grímsson nú forseti íslands.
Ég er ekki búin að gleyma því.
Ögmundur í heilbrigðismálin en hann er búin að þvaðra um það í mörg ár að komið hafi verið mjög illa fram við öryrkja og ellilífeyrisþega.
Ætli lífsgæði þeirra batni?
Jóhanna sem forsætisráðherra.
Eru allir búnir að gleyma hvað hún gerði fyrir löngu varðandi húsnæðismálin í landinu.
Verðtryggingu og fleira.
Ætlar hún kannski að aftengja hana nú.
Kannski er fólkið í landinu búið að gleyma þessu.
Ég er ekki búin að gleyma fortíð þessa fólks í stjórnum landsins.
Margt væri hægt að tíunda hér í viðbót en læt það ógert því mér verður flökurt við að hugsa um þessi ár hvernig stjórnmálin voru og alþýðan skattpínd.
Ef allt á að verða svo gott þegar og ef þau taka við stjórninni hvar ætla þau að fá fjármagnið?
Auðvitað með því að skattpína lýðinn.
Ég er mjög kvíðin.
Bloggar | 27.1.2009 | 17:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Já ég spyr hvað verður um okkur nú þegar stjórnin er farin frá?
Verðum við gjaldþrota eða höldum við höfði á meðan stjórnmálamenn plotta sín á milli hver fær hvað.
Hver hefur betur Sjálfstæðisflokkurinn/risaeðlan, valdaskessan/Samfylkingin eða helgrímur/Vinstri grænir.
Þjóðin verður í rússneskri rúllettu næstu dægur.
Ég óska Geir og Ingibjörgu góðs bata og það kemur maður í manns stað því við vitum að enginn er ómissandi.
Nú er bara að finna rétta fólkið með viti, fagfólk til að taka á vandanum með nýrri stjórn fram að kosningum, skapa traust fólksins á ný og hefja uppbyggingarstarfið, skapa nýtt ísland, nýja tíma með upplýsingaflæði til fólksins í landinu.
Við viljum skemmdu eplin og æxlin í burtu.
Bloggar | 26.1.2009 | 20:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ó hangikjöt, ó, hangikjöt, rófustappa, grænar baunir, súr hvalur. Ó hangikjöt, ó hangikjöt, sviðasulta, hrútspungar og harðfiskur, og hákarl og flatbrauð mér finnst svo gott að borða allan þennan mat.
Já nú fagna flestir landsmenn Þorranum með góðgæti. Hlakka til að fá mína súru punga.
Bloggar | 23.1.2009 | 07:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar